Innlent

Hættir hjá Landhelgisgæslunni

Hafsteinn Hafsteinsson lætur af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslu Íslands 1. janúar eftir rúmlega ellefu ára starf. Samkvæmt tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti var fallist á ósk Hafsteins um tilflutning í starfi. Hafsteinn hefur störf sem skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu. Þar mun Hafsteinn starfa að málefnum sem tengjast hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Hafsteinn er hæstaréttarlögmaður og hefur sérhæft sig í sjótryggingum og hafrétti og er löggiltur niðurjöfnunarmaður sjótjóna að því er segir í fréttatilkynningu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×