Jafnræðis ekki gætt 15. október 2004 00:01
Fulltrúi launanefndar sveitarfélaga í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara, sakar fulltrúa kennara í nefndinni um að gæta ekki jafnræðis við afgreiðslu á undanþágum vegna fatlaðra barna. Digranesskóla var veitt undanþága í dag vegna sérdeildar fyrir einhverfa. Sigurður Óli Kolbeinsson, fulltrúi launanefndar sveitarfélaga í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara, sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis, þar sem hann gagnrýnir harðlega framgöngu Þórörnu Jónasdóttur, fulltrúa kennara í nefndinni. Hann segir Þórörnu hafa synjað fjölda undanþágubeiðna, án þess að kynna sér þær efnislega, og sakar hana um að setja skilyrði, sem ekki séu á valdi nefndarinnar. Sigurður Óli segir enga tilraun hafa verið gerða af hálfu fulltrúa kennara til að gæta jafnræðis við afgreiðslu á undanþágum vegna fatlaðra barna. Þannig hafi öll börn í Öskjuhlíðarskóla notið kennsku og ummönnunar í skólanum frá 4. október, á meðan fulltrúi Kennara hafi ekki fallist á að veita undanþágu vegna barna, sem eins eða verr er ástatt um í öðrum skólum. Sigurður segir þetta ekki boðlegt og telur nauðsynlegt að breyta fyrirkomulagi undanþágunefndar. Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans telur að verið sé að mismuna fötluðum börnum í verkfalli grunnskólakennara. Hún segist telja að Reykjavíkurborg hafi sett markmið um að hafa skólana án aðgreiningar og með því reynt að opna þá og samfélagið allt fyrir þessum einstaklingum. Því hljóti að gilda það sama fyrir einstaklinga í sérskólum og almennum skólum. Landssamtök foreldra, Heimili og skóli, hafa hvatt foreldra til að spyrja kjörna sveitarstjórnarfulltrúa að því hvernig þeir ætli að axla þá ábyrgð að halda úti 170 daga skólastarfi, eins og lög geri ráð fyrir. Elín Thorarensen, framkvæmdastjóri samtakanna segir samtökin hvetja foreldra til þess að skrifa í blöðin, vera sýnilegir og fara fram á að sveitarfélögin semji hvert fyrir sig. Eins séu deiluaðilar hvattir til þess að nálgast hvorn annan, enda sé verkfallið þegar orðið allt of langt.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Sjá meira