Barðist við samvisku sína og vann 15. október 2004 00:01 "
Ég reykti í átján mánuði. Ég er rétt rúmlega sextíu og tveggja ára og byrjaði að reykja þegar ég vann í tóbaksiðnaðinum," segir Jeffrey Wigand, prófessor og lífefnafræðingur: "Ég reykti af því að það var frítt. Allir reyktu og félagslegi þrýstingurinn var mikill." Wigand kom til landsins til á fimmtudag til að fræða fólk og ráðamenn um starfsaðferðir fyrirtækja í tóbaksframleiðslu sem hann þekkir frá fyrstu hendi. Wigand hóf störf hjá þriðja stærsta tóbaksfyrirtæki í Bandaríkjunum, Brown & Williamson, í ársbyrjun 1989. Hann starfaði þar til ársins 1994 sem framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs. Hann átti glæstan tuttugu og fimm ára feril sem vísindamaður að baki og var fenginn til starfa til að minnka skaðsemi sígarettna. "Ég taldi mig geta tekið eitur úr sígarettum. Það myndi hjálpa fullorðnu fólki sem reykti. Ég gat ekki ímyndað mér að tóbaki yrði beint til óharðnaðra unglinga, sem ég síðar sá að var raunin." @.mfyr:Með lífið í lúkunum Wigand fór út úr tóbaksiðnaðinum með hvelli. Hann upplýsti Bandaríkjamenn um lygavefinn sem spunninn er um þau skaðlegu efni sem sígarettur innihalda. Barátta hans náði augum Hollywood. Hann er fyrirmyndin að margtilnefndri óskarsverðlaunamynd, The Insider, þar sem Russell Crowe leikur aðalhlutverkið; dr. Jeffrey Wigand: "Ef þú hefur getu til að stöðva hluti sem valda skaða ber þér skylda til þess," segir Wigand. Það gerði hann og stóð í langri baráttu við tóbaksfyrirtækið fyrir dómstólum. Hann hafði verið rekinn frá störfum fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum og óska breytinga. Í fréttaskýringaþættinum 60 mínútum árið 1996 sagði hann sögu sína. Aldrei fyrr hafði svo háttsettur maður frá tóbaksfyrirtækjunum stigið fram og sagt hvað byggi á bak við iðnaðinn. Fyrrum atvinnurekandi Wigands réði til sín her manna til að ófrægja hann. Fjölskyldulífið stóð höllum fæti, ekki síst fjárhagslega þar sem hann missti allar heilbrigðistryggingar við brottreksturinn, en Wigand er faðir tveggja stúlkna. Önnur þeirra fæddist með klofinn hrygg og þarf mikla umönnun. Í baráttunni við tóbakið var honum hótað lífláti. Hann gekk um tíma með byssu á sér. @.mfyr:Lifað á lyginni Wigand segir að fljótlega eftir að hann hóf störf hjá Brown & Williamson hafi hann orðið þess áskynja að fyrirtækinu var mikið í mun að leyna sannleikanum: "Innan fyrirtækisins ræddum við um skaðsemi nikótíns og hve ánetjandi það væri en út á við var sagt að það væri eininungis notað til að bæta bragð." Wigand segir að hvern einasta vinnudag hafi hann þurft að takast á við siðferðislegar spurningar: "Ég horfði upp á ólöglegan innflutning tóbaksfræja til landa þar sem það var bannað. Sá skjöl flutt úr landi til eyðingar. Það setti að mér óhug. En það sem truflaði mig mest var að þótt niðurstöður sýndu að efni sem nýtt væru í sígarettur væru skaðleg var haldið áfram að notast við þau. Jafnvel þótt fyrirtækið hefði þekkt staðreyndirnar um efnin allt frá sjötta áratugnum." @.mfyr:Sér ekki eftir neinu Á meðan Wigand starfaði hjá Brown & Williamson voru árslaun hans á þriðja tug milljóna íslenskra króna. Rannsóknardeild hans varði rúmlega tvö hundruð milljónum í rannsóknir á innihaldi og efnasamböndum sígarettna árlega. Wigand segir fjárhagslegt öryggi ekki hafa komið í veg fyrir að hann segði sögu sína: "Peningar hjálpa í lífinu og gera hlutina auðveldari. En sem manneskja ber manni að vera heiðarlegur. Ef maður sér ranglega breytt er skylda að gera eitthvað í því. Peningar eiga ekki að blinda þig," segir Jeffrey Wigand og bætir við: "Ég er ríkari nú en ég hef verið á ævi minni. Þó ekki ef horft er til peninga. Ríkidæmi kemur á marga vegu. Ég er rólyndari. Mér líður eins og ég hafi gert rétt."
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira