Nýr flugrisi tekur til starfa 15. október 2004 00:01
Nýr risi á alþjóðlegum flugmarkaði, Avion Group, tekur til starfa hér á landi um áramótin. Félagið mun eiga 63 breiðþotur. Áætluð heildarvelta er 72 milljarðar króna, sem er tvöfalt meira en velta Flugleiða, og er stefnt að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Eignarhaldsfélagið Avion Group verður til með sameiningu Atlanta á Íslandi og Íslandsflugs og rekstri Atlanta í Evrópu og Excel Airways. Magnús Þorsteinsson verður stjórnarformaður nýja félagsins og Hafþór Hafsteinsson framkvæmdastjóri. Samanlagður fjöldi starfsmanna verður um 3200 og verða starfsstöðvar rúmlega tuttugu, víðsvegar um heiminn. Atlanta á Íslandi hefur keypt tæplega 31% hlut í Excel Airways, til viðbótar við rúmlega 40% hlut, sem það átti fyrir, og á það því rúmlega 71% hlut í breska flugfélaginu. Yfirtökuskylda hefur myndast og verður öðrum hluthöfum gert tilboð á næstu dögum. Magnús segir að Excel Airways hafi verið skráð í bresku kauphöllinni, en nú hafi það verið tekið yfir og verði afskráð. Stefnt sé að því að fyrirtækið verði skráð í íslensku kauphöllinni Avion Group mun annast rekstur flugfélaga sem starfa á alþjóðlegum vettvangi, og verða sextíu og þrjár Boeing og Airbus breiðþotur í eigu félagsins, en áætluð heildarvelta þess nemur rúmlega sjötíu milljörðum króna. Höfuðstöðvar flugfélagsins verða á Íslandi. Magnús segir slagkraftinn aukast við sameininguna og nú sé fyritækið orðið stærst á sínu sviði og verði því í forystu, sem sé alltaf gott. Magnús segir að áhersla sé lögð á að hagræða og liður í því sé að sameina Atlanta á Íslandi og Íslandsflug, í dótturfélag Avion Group. Ómar Benediktsson verður forstjóri dótturfélagsins, sem verður eitt stærsta og öflugasta félag heims í leigu flugvéla með áhöfn og viðhaldi. Magnús segir frekari fjárfestingarmöguleika til skoðunar, en Iceland Express sé þó ekki einn af þeim í augnablikinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira