Krefst refsingar og réttindamissis 25. júní 2004 00:01
Ákæra á hendur Gunnari Erni Kristjánssyni, fyrrverandi forstjóra SÍF og fyrrum endurskoðanda Tryggingasjóðs lækna, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Gunnar Örn er sakaður um brot á almennum hegningarlögum, lögum um ársreikninga, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um endurskoðendur. Gunnar Örn er í ákæru sagður hafa vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi ársreikninga Tryggingasjóðs lækna á árunum 1993 til 2001. Hann hafi eftir endurskoðun á ársreikningum sjóðsins fyrir árin 1992 til 2000 áritað ársreikningana án fyrirvara og með yfirlýsingu um að þeir gæfu glögga mynd af efnahag og breytingu á eign sjóðsins án þess að hafa aflað fullnægjandi gagna eða skoðað þau gögn sem fyrir voru með fullnægjandi hætti. Gunnar Örn er sakaður um að hafa ekki kannað á fullnægjandi hátt gögn sem lágu að baki skuldabréfalistum sem fyrir hann voru lagðir þrátt fyrir að gögn gæfu til kynna að níutíu prósent eigna sjóðsins væru bundin í skuldabréfum. Einnig hafi hann ekki aflað gagna um lífeyrisgreiðslur, endurgreiðslur, réttindaflutning og útborganir úr sjóðnum né aflað gagna um sundurliðaða inneign sjóðsfélaga. Þá aflaði hann ekki nægjanlegra gagna um eignastöðu og skuldbindingar sjóðsins til að geta endurskoðað ársreikninga í samræmi við reglur bankaeftirlitsins og síðar Fjármálaeftirlitsins um endurskoðun lífeyrissjóða. En við rannsókn kom í ljós að raunvirði eigna sjóðsins í árslok 2000 var innan við 35 prósent af metnu verðmæti eignanna samkvæmt ársreikningnum. Ákæruvaldið krefst að Gunnar Örn verði dæmdur til refsingar og að hann verði sviptur réttindum til starfa sem löggiltur endurskoðandi. Fyrir skemmstu var fyrrverandi framkvæmdastjóri Tryggingasjóðs lækna, Lárus Halldórsson, ákærður fyrir fjárdrátt samtals að upphæð tæplega 76 milljóna króna á árunum 1992-1999. Gunnar Örn var endurskoðandi sjóðsins allan þann tíma. Ekki er víst hvort Gunnar Örn hafi skrifað undir reikningana vitandi um fjárdráttinn eða hvort hann gerði það í blindni.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira