Innlent

86% eiga tölvu

Í febrúarmánuði árið 2004 voru 86% heimila á Íslandi með tölvu og fjögur af hverjum fimm heimilum gátu tengst interneti. Heimilum sem nota ADSL, SDSL eða annars konar xDSL tengingu fjölgar úr 40% árið 2003 í 54% árið 2004. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Hagstofunnar á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og interneti. Fjöldi heimilismanna ræður nokkru um þann tækjabúnað sem til er á heimili. Þannig voru sjónvörp, farsímar, tölvur og internettengingar sjaldgæfari á einstaklingsheimilum en þar sem voru tveir eða fleiri einstaklingar. Minnst helmingur heimila með börn höfðu leikjatölvu árið 2004 á meðan hlutfall barnlausra heimila með leikjatölvu lá á bilinu 11-34%. Umfang tölvu- og internetnotkunar fólks er óbreytt frá árinu 2003 en árið 2004 notuðu 85% einstaklinga á aldrinum 16 til 74 ára tölvu og fjórir af hverjum fimm notuðu internet. Notkun internets er algengari hér á landi en á öðrum Norðurlöndum sem og í löndum Evrópusambandsins. Rafræn verslun eykst en árið 2004 hafði fjórði hver einstaklingur pantað vöru eða þjónustu um internet og nær allir greiddu fyrir kaupin með greiðslukorti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×