Innlent

Opna 50 verslanir á ári

Baugur Group hefur keypt bresku tískuverslanakeðjuna Karen Millen og verður hún hluti af Oasis Group. Stefnt er að því að opna fimmtíu nýjar verslanir á ári. Kaupin á Karen Millen hafa vakið þó nokkra athygli. Stofnendur Karen Millen seldu Oasis Group verslanakeðjuna fyrir 15,8 milljarða. Reyndar eru 40 prósent hlutafjárins í eigu annarra, Sigurðar Bollasonar og Magnúsar Ármanns. Karen Millen rekur yfir 120 verslanir í eigin nafni og undir vörumerkinu Whistles. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir koma til greina að setja Oasis Group á markað seinna meir, fyrirtækið sé einstakt á breskan mælikvarða með sterk vörumerki og góða staðsetningu. Hann segir fyrstu plönin vera að bæta við 50 verslunum á ári en þær séu nú um 550. Þó að frekari fjárfestingar á Bretlandi komi til greina, segir Jón Ásgeir orðróm um áhuga Baugs á verslanakeðjunni Alexon, sem Guardian greinir frá í dag, ekki eiga við rök að styðjast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×