Frumvarpinu breytt 13. nóvember 2004 00:01
Allsherjarnefnd hefur gert breytingar á frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem miðað er að því að stöðva verkfall grunnskólakennara og setja kjör þeirra í gerðardóm. Þær gera ráð fyrir að gerðardómur verði skipaður þegar í næstu viku og að úrskurður dómsins verði afturvirkur til þess tíma þegar kennarar koma aftur til vinnu. Hundruð kennara mættu fyrir utan Alþingi í morgun þar sem umræður um frumvarpið fara fram. Kennarar mættu fyrstir til leiks á Alþingi í morgun, og voru þeir fyrstu komnir fyrir klukkan 10. Þegar mest lét voru þar nokkur hundruð kennarar, mun fleiri en í gær. Þeir flautuðu og púuðu þegar stjórnarliðar mættu til vinnu en fögnuðu stjórnarandstæðingum ákaft. Þá liggur uppskera heillar bananaplantekru á tröppum Alþingis, með vísan til bananalýðvelda sem virða leikreglur lýðræðis að vettugi, ásamt skilti sem á stendur "þjóðarskömm". Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands segir kennara í sjálfu sér ekki vera á móti lögum að þeir séu heldur ekki mótfallnir því að gerðardómur úrskurði um laun þeirar. Hins vegar sé ótækt að gerðardómur taki ekki til starfa fyrr en eftir mánuð og sé ekki ætlað að komast að niðurstöðu fyrr en í lok mars á næsta ári, með afturvirkum breytingum sem ná ekki lengra aftur en til 15. desember. Þetta gerði það að verkum að háværar raddir voru á meðal kennara um að mæta ekki til vinnu á mánudag, eins og þeim er gert að gera samkvæmt frumvarpinu. Svona hljómaði frumvarpið í gær, en það hefur nú breyst í meðförum allsherjarnefndar. Þingfundur átti upphaflega að hefjast klukkan hálfellefu en honum var frestað í þrígang vegna tæknilegra atriða eins og það heitir. Fundur hófst svo þegar klukkuna vantaði stundarfjórðung í tólf. Fyrstur steig í pontu Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar. Hann boðaði þær breytingar á frumvarpinu að gerðardómur verður skipaður þegar þann 20. nóvember eða eftir slétta viku, verði ekki búið að semja fyrir þann tíma. Gerðardómi er ætlað að komast að niðurstöðu fyrir 28. febrúar næstkomandi og skal úrskurður hans vera afturvirkur til þess tíma sem lögin taka gildi, eða með öðrum orðum, kennarar verða þegar á mánudag á þeim launum sem gerðardómur mun úthluta þeim. Þetta segir Bjarni Benediktsson að sé gert í ljósi viðtala við deilendur í gærkvöld þar sem það kom skýrt fram að viðræðurnar væru í algeru strandi og ekkert sem bendir til að þeir geti komist að samkomulagi. Í ljósi þessara breytinga er ekki fjarlægt að draga þá ályktun að forysta Kennarasambandsins sé sáttari við frumvarpið nú en í gær, en reikna má með að umræður um frumvarpið dragist fram eftir degi. Bjarni Benediktsson var að ljúka máli sínu og nú stendur Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í ræðustól og mælir fyrir minnihlutaáliti allsherjarnefndar.
Fréttir Innlent Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Tveggja turna tal í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira