Innlent

Harmar ásakanir

Barnarverndarstofa harmar þær ásakanir sem rekstraraðilar meðferðarheimilisins að Torfastöðum hafa sett fram í fjölmiðlum undanfarið um ómálefnalega og óeðlilega meðferð mála er snerta heimilið. Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu Barnaverndarstofu. Þar vísar stofan alfarið á bug að til staðar sé nokkur óvild í garð hjónanna á Torfastöðum sem hafi ráðið vinnubrögðum í málum um meðferðarheimilið. Í pistlinum segir að í frétt Stöðvar 2 sé þess getið að þjónustusamningi um rekstur meðferðarheimilis að Torfastöðum hafi verið sagt upp og er gefið í skyn að það hafi haft áhrif á afstöðu Barnaverndarstofu til mála sem komu upp vegna gruns um kynferðisofbeldi starfsmanns á Torfastöðum. Hið rétta sé að rekstraraðilar sögðu sjálfir upp þjónustusamningi sínum vegna óánægju með fjárframlög til starfseminnar. Þetta hafi gerst allnokkru áður en grunur vaknaði um kynferðisofbeldi og telur Barnaverndarstofa afar óviðeigandi sé að blanda þessum málum saman.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×