Innlent

Síbrotabræður í haldi lögreglu

Ungir bræður, 15 og 16 ára, voru handteknir í gærmorgun eftir að hafa brotist inn í íbúðarhús í Austurbæ Reykjavíkur. Bræðurnir, sem búsettir eru í Vesturbæ Reykjavíkur, hafa komið við sögu í fjölda innbrota, að sögn lögreglunnar í Reykjavík og verið marghandteknir fyrir. Afbrotasaga bræðranna mun vera löng. Yngri bróðirinn komst meðal annars í fréttir undir árslok 2002, þá 13 ára gamall, þegar hann og 31 árs gamall maður af erlendu bergi brotinn voru grunaðir um hasssölu á Sauðárkróki og á Blönduósi. Að sögn lögreglu voru bræðurnir enn í haldi síðdegis í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×