Innlent

Skipar nefnd um Evrópumál

MYND/Róbert
Forsætisráðherra hefur skipað nefnd um Evrópumál. Helstu hlutverk hennar eru meðal annars að kanna framkvæmd EES-samningsins, hvort og þá hverskonar undanþágur séu veittar í aðildarsamningum að Evrópusambandinu, hvað aðild myndi kosta ríkisstjóð, til lengri og skemmri tíma, og hverjir séu kostir og gallar evrunnar fyrir Ísland. Allir flokkar á Alþingi munu eiga fulltrúa í nefndinni, en formaður hennar verður Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×