Innlent

Ekið á mann og hann skilinn eftir

Ekið á gangandi vegfaranda í Ártúnsbrekkunni um tvöleytið í nótt. Ökumaður bílsins hvarf af vettvangi og skildi manninn slasaðan eftir. Komið var að manninum meðvitunarlitlum á götunni og var hann fluttur á slysadeild Landsspítalans í Fossvogi. Hann var fluttur á gjörgæsludeild og er enn í rannsókn, en ekki í lífshættu. Lögregla fann bifreiðina skömmu síðar og mann, sem grunaður er um að hafa ekið henni. Hann er enn í haldi lögreglu og er grunaður um ölvun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×