Innlent

Nefnd um Evrópumál skipuð

Forsætisráðherra hefur skipað nefnd um Evrópumál, en hlutverk hennar er meðal annars að kanna framkvæmd EES-samningsins, hvort og þá hvers konar undanþágur séu veittar í aðildarsamningnum að Evrópusambandinu og hvað aðild myndi kosta ríkissjóð til lengri og skemmri tíma litið. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra var skipaður formaður nefndarinnar en aðrir sem nefndina skipa eru Einar K. Guðfinnsson, Hjálmar Árnason, Jónína Bjartmarz, Össur Skarphéðinsson, Ragnar Arnalds, Katrín Jakobsdóttir og Brynjar Sindri Sigurðsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×