Baráttan um bóksöluna 15. desember 2004 00:01
Bóksalan fyrir þessi jólin er nýhafin fyrir alvöru og bækur, stórar og smáar, streyma úr hillum og af borðum verslananna. Líkt og síðustu ár fást söluvænlegustu bækurnar í stórmörkuðunum og hefur borðum með þeim verið komið fyrir inn á milli kjötborða og mjólkurkæla. Drjúgir afslættir eru gefnir af jólabókunum og kaupendum fellur vitaskuld vel að þurfa að borga sem minnst. Ekki er óalgeng sjón að sjá innkaupakerrur hlaðnar bókum í bland við kjötfars, kartöflur og klósettpappír. Á tímum hafta og helsis þurfti sérstakt leyfi upp á vasann til að fá að selja bækur. Bókaútgefendur veittu leyfin og gættu þess að fjöldi útgefinna leyfa væri í samræmi við íbúafjölda á hverjum stað. Þetta fyrirkomulag lagðist af fyrir mörgum árum en sumum bóksölunum verður hugsað til þess nú þegar hver sem er getur selt hvað sem er, hvenær sem er, fyrir hvað sem er. Gagnrýni þeirra á stórmarkaðasöluna felst fyrst og fremst í þeirri staðreynd að hún fer aðeins fram síðustu þrjár vikur fyrir jól. Eftir það standa nokkrar kiljur og einstaka barnabækur við kassana. Stórmörkuðunum er sumsé legið á hálsi fyrir að fleyta rjómann ofan af. Sérverslunum með bækur hefur fækkað talsvert en samkvæmt nýjustu Bókatíðindum eru þær nú á milli 30 og 40 á landinu öllu. Útsölustöðum bóka fjölgar um annað eins fyrir jólin.
Innlent Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira