Innlent

Tveir slasast í árekstri

Tveir karlmenn slösuðust þegar annar þeira missti stjórn á bíl sem þeir voru í á hringtorgi á mótum Lindavegar og Fífuhvammsvegar á fjórða tímanum í dag. Bíllinn hafnaði á ljósastaur og skemmdist töluvert. Svo virðist sem hvorugur mannanna hafi verið í belti og köstuðust þeir báðir í framrúðu bílsins með tilheyrandi afleiðingum. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir, en grunur leikur á ölvun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×