Deilur útgerðarmanna og sjómanna 28. september 2004 00:01
Það er víða hart deilt vegna kjaramála. Sjómenn eru með lausa samninga og reyna að semja við útgerðarmenn, en þeir hafa ekki samið með hefðbundnum hætti í meira en áratug. Útgerðarmenn segja samninga sjómanna tuttugu árum á eftir en sjómenn saka tiltekna útgerðarmenn á móti um að virða réttindi þeirra að vettugi. Hart var deilt um kjaramál sjómanna á morgunverðarfundi Verslunarráðs í morgun. Framsögumenn á fundinum voru þeir Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands og Guðmundur Kristjánsson aðaleigandi útgerðarfélagsins Brims. Verkalýðsforystan hefur harðlega gagnrýnt Guðmund að undanförnu fyrir sérsamning sem hann gerði við áhöfn Sólbaks á dögunum. Einkahlutafélag var stofnað um rekstur togarans og samið sérstaklega við áhöfnina. Verkalýðsforystan fær hins vegar ekki að sjá þá samninga og sakar Guðmund í raun um að vega að grundvelli þess sem áunnist hafi í stéttabaráttunni með því að þvinga áhöfnina til þess að semja án aðkomu Sjómannafélagsins. Gylfi Arnbjörnsson segir þetta alvarlegt mál sem ekki verði liðið. Hann segir að sé valkosturinn annað hvort að leggja skipinu eða selja það, eða að víkja ákveðnum þáttum kjarasamningsins til hliðar og setja þorskkvóta á skipið og veiða þar með mikið, sé valkosturinn mjög þröngur. Gylfi segir að erfitt sé annað en að samþykkja upphlaup útgerðarmanna fyrir sjómenn, þar sem þeim sé stillt upp við vegg. Þess vegna séu stéttarfélög, til þess að koma í veg fyrir að fólki sé stillt upp við vegg. Verið sé að vinna í því nú. Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður hjá Brimi, þvertekur fyrir að nokkrar þvinganir hafi átt sér stað og segir þvert í mót að margreynt hafi verið að ná samningum í gegnum verkalýðsfélögin. Það hafi ekki gengið. Guðmundur segir að sá samskiptamáti sem verið hefur sé orðinn staðnaður og ekki sé eðlilegt að bíða bara og bíða, nú þurfi framþróun á markaðnum og frjálsræði.
Fréttir Innlent Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Knapi datt af baki Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira