Sport

Quatar kallar

Hvað gera sífellt fleiri af hæstlaunuðustu knattspyrnumönnum heims þegar halla fer undir fæti vegna aldurs með stórliðum Evrópu? Í stað þess að hætta á toppnum með bankainnistæður sem gætu gert öllum íbúum Eritreu kleift að lifa í vellystingum í langan tíma er stefnan tekin til smáríkisins Quatar enda tilboðin sem þaðan streyma með ólíkindum. Enginn þarf að velkjast í vafa um að Argentínumaðurinn Gabriel Omar Batistuta, hafði engin sultarlaun þegar hann spilaði á Ítalíu fyrir nokkrum árum. Knattspyrnumaður með hans hæfileika og getu til að skora mörk er mikils metinn og slíkir menn fá aldeilis laun fyrir erfiðið. Heimsklassaleikmenn í dag eru að fá að jafnaði sex til tíu milljónir króna í vikulaun eða allt að 40 milljónum á mánuði og óhætt er að gera að því skóna að laun Batistuta hafi verið í námunda við það. En að eiga þess kost að spila nokkur ár til viðbótar í olíuríki sem fáir hafa heyrt um á launum sem eru jafnhá ef ekki hærri en toppleikmenn fá í Evrópu var of mikil freisting fyrir milljónamæringinn Batistuta. En hann er langt í frá sá eini. Peningar heilla jafnvel þó nóg sé til af þeim og til Quatar hafa haldið margir leikmenn sem komnir voru yfir sitt besta í Evrópu og gengu í endurnýjun lífdaga í furstadæminu. Engin krafa gerð um að spila vel eða leggja sig fram heldur einungis að mæta. Ólíklegustu menn hafa látið sig hafa það og einstaka menn ár eftir ár. Stefan Effenberg, Mario Basler, Ali Benarbia, Josep Guardiola, Fernando Hierro, Sonny Anderson. Svo má lengi telja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×