Rekin af hundasýningu 20. nóvember 2004 00:01
Hundar af öllum stærðum og gerðum komu saman á hundasýningunni „Hvuttadögum“ sem fram fer nú um helgina. Hundarnir hafa verið til mikillar fyrirmyndar en hegðun mannfólksins vakti athygli. Einn sýnenda var rekinn af sýningunni vegna fjölskyldutengsla sinna. Sesselja Tómasdóttir var ein þeirra sem ætlaði að kynna hundategund á Hvuttadögum. Hún hafði komið sér fyrir í sýningarbás þar sem ætlunin var að kynna langhunda fyrir sýningargestum. Skömmu fyrir opnum var henni hins vegar tjáð að vegna tengsla hennar við hundaræktunina í Dalsmynni, vildu aðrir sýnendur að hún tæki ekki þátt í Hvuttadögum. Sesselja, sem er dóttir eigenda Dalsmynnis, segist hafa orðið mjög undrandi og hreinlega vera miður sín. Hún líkir þessu við kjaftshögg. Eins og kunnugt er hafa skærur verið á milli Dalsmynnis, sem tilheyrir félaginu Íshundum, og Hundaræktarfélags Íslands. Aðstandendur Hvuttadaga eru þó óháðir slíkum félögum og segjast hafa alið þá von í brjósti að hundaræktendur og eigendur myndu leggja niður vopn og skemmta sér um helgina í návist dýranna. Sýningarstjórinn, Jón Ísleifsson, segist skilja særindi Sesselju. Aðrir sýnendur hefðu hins vegar sett honum stólinn fyrir dyrnar; annað hvort færi Sesselja af sýningunni eða þeir. Jón segir að allir séu á móti starfseminni og að hinir þátttakendurnir hefðu ekki treyst sér til að vera á staðnum ef Sesselja væri þar. Aðspurður segir hann miklar tilfinningar í hundaheiminum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Sjá meira