Ekki leitað um helgina 25. júlí 2004 00:01
Engin skipuleg leit fór fram að Sri Rahmawati um helgina. Konunnar hefur verið saknað í réttar þrjár vikur. Fyrrverandi sambýlismaður hennar verður yfirheyrður í dag. Hann kærir ekki úrskurð um framlengingu á gæsluvarðhaldi. Lögreglan lét ekki fara fram neina skipulega leit að Sri Rahmawati um helgina, að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík. Nú eru réttar þrjár vikur liðnar síðan konunnar var fyrst saknað. Fyrrverandi sambýlismaður hennar, Hákon Eydal sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið henni að bana, verður yfirheyrður í dag. Hann hefur neitað að hafa nokkuð með hvarf konunnar að gera. Ómar Smári sagði í gær, að vonast væri til þess að yfirheyrslurnar yfir Hákoni í dag myndu skila einhverjum árangri. Spurður hvort hinn grunaði neitaði enn sök kvaðst Ómar Smári ekki vilja gefa upp opinberlega hvað kæmi fram í yfirheyrslunum. Þar með væri verið að gefa öðrum upplýsingar um málið. Spurður hvort það þýddi að fleiri væru grunaðir um að vita hvað átt hefði sér stað í íbúð hins grunaða í Stórholti eða hver afdrif konunnar hefðu orðið, svaraði Ómar Smári: "Ekki á þessari stundu." Hann sagði enn fremur að unnið hefði verið úr vísbendingum og gögnum undanfarna daga en staðan væri sú sama og fyrir helgi. Ekkert nýtt væri að frétta af því. Fyrir helgina sagði hann það sama við Fréttablaðið, að ekkert nýtt væri "að frétta af rannsókn málsins að svo stöddu". Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur rannsóknarvinna lögreglunnar meðal annars falist í því, að leitast hefur verið við að lesa úr sönnunargögnum með hvaða hætti atburðarásin í íbúð Hákonar í Stórholtinu hafi verið. Hákon Eydal var fyrir helgina úrskurðaður í framlengt gæsluvarðhald til 11. ágúst næstkomandi og var jafnframt úrskurðaður til að sæta geðrannsókn. Undirbúningi að henni er lokið, að því er Ómar Smári sagði, en búast má við því að hún taki nokkra daga. Hilmar Baldursson hdl., verjandi Hákonar, sagði í gær að ljóst væri að Hákon myndi ekki kæra úrskurðinn um framlengt gæsluvarðhald.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira