Ólíklegt að Austurbær verði rifinn 25. júlí 2004 00:01
Það eru ekki miklar líkur á því að niðurrif Austurbæjar verði heimilað," sagði Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og forseti borgarstjórnar, er Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum hans vegna niðurstaðna úr skoðanakönnun um hugsanlegt niðurrif Austurbæjar. Þar kom fram að ríflega sjö af hverjum tíu Reykvíkingum vilja að Austurbæjarbíó fái að standa. Gallup framkvæmdi könnunina að beiðni Hollvinasamtaka Austurbæjarbíós. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, talsmaður samtakanna, segir niðurstöðurnar afdráttarlausar. "Ég vænti þess og vonast til þess að borgaryfirvöld hlusti á afgerandi rödd borgarbúa sem þau starfa í umboði fyrir og finni húsinu verðugt hlutverk," sagði Steinunn. Á.H.Á. byggingar, núverandi eigandi Austurbæjar, hefur stefnt að því að láta rífa húsið og byggja þess í stað íbúðar- og verslunarhúsnæði. Árni Þór sagði að málið væri í vinnslu hjá skipulags- og byggingarnefnd en það fékk neikvæð viðbrögð í grenndarkynningu. "Það eru skiptar skoðanir um málið í borgarráði og í nefndinni þó svo að það sé ekkert óeðlilegt við að málið sé ekki komið í formlegt kynningarferli," sagði Árni Þór. Hann segir að von sé á því að skipulagsnefnd afgreiði málið frá sér í ágúst. Hann segir að endanleg ákvörðun um hvort rífa eigi húsið eða ekki verði ekki tekin með tilliti til fyrirætlana eigenda hússins. "Eigandinn keypti húsið og tók þar áhættu með það hvort leyfi fengist fyrir niðurrifi eða ekki," segir Árni Þór. Spurður hvort borgin myndi hugsanlega koma að þeim rekstri sem hugsanlega gæti farið fram í húsinu, segir hann það algjörlega útilokað.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira