Draugabani á Ströndum 25. júlí 2004 00:01
Á Ströndum læra menn að kveða niður drauga og ekki er vanþörf á því allt er morandi í draugum, segir Sigurður Atlason draugabani sem fréttastofan hitti í Hólmavík. Hann segist vera búinn að kveða niður þrjátíu drauga í sumar. Galdrafárið á Íslandi á sautjándu öld er sérstætt tímabil. Á annað hundrað galdramála komu upp og meira en tuttugu manns voru brenndir fyrir galdra. Sautján þeirra voru af Vestfjörðum enda fer miklum sögum af galdrakunnáttu Strandamanna. Á galdrasýningunni í Hólmavík er meðal annars fjallað um uppvakninga, dauða menn sem galdramenn vöktu upp og sendu á óvini sína. Á sýningunni sést uppvakningur þar sem hann rífur sig upp úr gröfinni - og auðvitað bráðnauðsynlegt að kveða hann niður. Sigurður draugabani segir drauga vera um allt land og bendir á að íslensk þjóðtrú sé uppfull af draugasögum og -gangi og vissara sé fyrir þá sem nú eru á lífi að taka eitthvað mark á því. Flestir eru þó draugarnir meinlitlir að sögn Sigurðar en til að gestum, sem taka þátt í þessum gjörningi, verði ekki meint af verða þeir að fara eftir fyrirmælum draugabanans í einu og öllu. Þeir þurfa meðal annars að bera á sér sérstakan stein sem Sigurður lætur þá hafa en losa sig við hann áður en þeir fara út fyrir sýslumörkin. Draugabaninn segist hafa fregnað af tveimur tilvikum þar sem menn hafi gleymt að losa sig við steininn í tíma og áttað sig á því þegar dekk á bíl þeirra hafi sprungið.
Fréttir Innlent Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fleiri fréttir Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár Sjá meira