Innlent

Fimm slösuðust í bílveltu

Fimm manns slösuðust, þar af einn lífshættulega, eftir að bíll fór út af veginum og valt við Vatnsskarðsnámur á veginum til Krýsuvíkur á tíunda tímanum í gærkvöld. Krýsuvíkurvegi var lokað á kafla um tíma vegna slyssins. Mennirnir í bílnum eru útlendingar en hafa verið búsettir hér á landi vegna starfa sinna. Þeir voru fluttir á Landspítalann við Hringbraut með sjúkrabíl. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×