Innlent

Dæmdir til að greiða bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline og Líf hf. til að greiða Margréti Gísladóttur bætur vegna líkamstjóns er hún varð fyrir við inntöku lyfja. Krafist er 32ja milljóna króna bóta, auk vaxta.  Margrét Gísladóttir var nær dauða en lífi eftir að hafa tekið inn lyfið Lamictal, en hún fékk svo kallað Steven Johnson heilkenni í kjölfarið.  Hún sagði í viðtali við fréttastofu Stöðvar tvö fyrir nokkrum mánuðum að það hefði þurft að halda henni sofandi í sex vikur vegna gífurlegs sársauka.  Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í morgun að fyrirtækin GlaxoSmithKline og Líf hefðu átt að vara við aukaverkun lyfsins en gerðu ekki. Fyrirtækin hefðu því jafna bótaskyldu í málinu. Fyrst verður þó reynt að semja um bætur, það er ef dómnum verður ekki áfrýjað til hæstaréttar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×