Innlent

Dómurinn hefur enga þýðingu

Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins telur að tryggja þurfi stjórnmálamönnum víðtækt málfrelsi.  Að hans mati vann Davíð Oddsson forsætisráðherra fullnaðarsigur í meiðyrðamáli sem Jón Ólafsson fyrrverandi aðaleigandi Norðurljósa höfðaði gegn honum.  Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur dæmdi í vikunni tvenn ummæli Davíðs um Jón dauð og ómerk en hafnaði öðrum kröfum; þ.e. um skaðabætur, um kostnað vegna birtingu dóms og um refsingu.  Kjartan telur ekki hægt að taka aftur töluð orð frekar en meydóm og því hafi dómurinn enga þýðingu í reynd, staðfest væri með dómnum að Jón hefði ekki orðið fyrir skaða vegna ummælanna. Kjartan segir forsætisráðherrann vanda málfar sitt mjög en tali tæpitungulaust, líkt og í þessu máli. Hann telur það hálfvegis aðför að málfrelsinu þegar persónur sem mikið eru í sviðsljósinu reyni að hefta málfrelsi stjórnmálamanna með því að ofsækja þá með meiðyrðamálum. Málfrelsi stjórnmálamanna sé afskaplega mikilvægt og líkir Kjartan því við málfrelsi fjölmiðla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×