Leeds vill ekki bíða til áramóta 24. nóvember 2004 00:01
Knattspyrnufélagið Leeds United sættir sig ekki við að Gylfi Einarsson þurfi að bíða til 1. janúar til þess að mega spila með félaginu í ensku 1. deildinni. Gylfi skrifaði undir samning við Leeds fyrr í þessum mánuði en samkvæmt reglum Alþjóða knattspyrnusambandsins geta leikmenn ekki skipt um félag frá ágúst og fram í janúar. Gylfi lék með Lilleström í norsku úrvalsdeildinni en keppni þar er nýlokið. Samningur Gylfa við félagið rennur út 30. nóvember. Knattspyrnustjóri Leeds, Kevin Blackwell, segir á heimasíðu Leeds að látið verði reyna á vinnulöggjöf Evrópusambandsins, Gylfi sé atvinnulaus frá og með 1. desember og eigi því líkt og aðrir fullan rétt á því að leita sér að vinnu líkt og aðrir launþegar í Evrópusambandinu. Lögfræðingar Leeds hafa bent á að norska knattspyrnumanninum Eric Nevland hafi verið heimilt að skipta úr Víkingi í Stavanger til hollenska liðsins Groningen fyrr í þessum mánuði. Sömu reglur eigi því að gilda um Gylfa segja forystumenn Leeds. Á heimasíðu enska liðsins fer knattspyrnustjórinn lofsamlegum orðum um íslenska landsliðsmanninn. Takist lögfræðingum Leeds ekki að fá leikheimild fyrir Gylfa þarf hann að bíða til áramóta. Gylfi, sem leikur á miðjunni, fær nú meiri samkeppni því Leeds gekk í morgun frá kaupum á öðrum miðjumanni, Shaun Derry frá Crystal Palace. Hann er 26 ára líkt og Gylfi og er þrettándi leikmaðurinn sem Kevin Blackwell knattspyrnustjóri kaupir frá því að hann tók við starfi knattpyrnustjóra í vor.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Körfubolti Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Fótbolti Fleiri fréttir Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Elvar Már til Póllands „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Cifuentes tekur við Leicester Sænsku meistararnir örugglega áfram Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Elvis snúinn aftur „Allt orðið eðlilegt á ný“ Liverpool tilbúið að slá metið aftur Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Púttaðstaða eins og hjá Tiger og Rory Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður „Ekki jafn miklar þreifingar og ekki jafn lokaður leikur“ KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Sjá meira