Aldrei möguleiki hjá Valsstúlkum 18. september 2004 00:01
Valur hafði lítið í sterkt lið Önnereds HK frá Svíþjóð að gera í seinni leik liðanna í Evrópukeppni félagsliða að Hlíðarenda. Úrslitin urðu 35-24 Svíunum í vil og 65-50 samanlagt í báðum leikjum. Eftir hagstæð úrslit í fyrri leik liðanna í Gautaborg gerðu Valskonur sér vonir um að komast áfram með góðum leik á heimavelli. Það kom hins vegar í ljós að þó nokkur styrkleikamunur er á liðunum. Önnered náði undirtökunum strax í upphafi og leiddi mestallan tímann. Eftir 15 mínútur var staðan orðin 4-9 og þar með var nokkuð ljóst að Valur væri ekki á leið áfram í keppninni. Valskonur stöppuðu í sig stálinu og minnkuðu muninn fyrir hlé þar sem staðan var 12-14. Valur byrjaði seinni hálfleikinn hreint hræðilega og Svíarnir skoruðu átta fyrstu mörkin, voru síðan ekkert á því að slaka á og komust mest 14 mörkum yfir áður en yfir lauk. Það mátti sjá á varnarleik Önnered að þær höfðu unnið heimavinnu sína vel, þær komust inn í margar sendingar hjá Val og það skilaði sér í fjölmörgum hraðaupphlaupum. Valskonur áttu fá svör í vörninni en hefðu mátt láta Svíana hafa meira fyrir sínum mörkum, sem flest komu úr opnum færum þar sem þær voru einar á móti markverði. Berglind í markinu gat lítið gert við öllum þessum mörkum en varði meirihlutann af langskotunum og það var ekki fyrr en 11 mínútur voru eftir að Svíarnir skoruðu með langskoti. ,,Þær gáfu bara í allt annan gír í dag eins og þær hafi verið að spara sig þarna úti. Þær spiluðu miklu hraðar í dag og voru miklu léttari á sér en úti. Við ætluðum að keyra á þær en dæmið snerist eiginlega við og þær skoruðu meira en helminginn af mörkunum úr hraðaupphlaupum sem reyndist okkur mjög dýrkeypt. Við vissum að þær væru stærri en við og líkamlega sterkari og ætluðum að vera sneggri og klókari en það gekk mjög lítið hjá okkur í dag,“ sagði Sigurlaug Rúnarsdóttir, fyrirliði Vals, í leikslok. Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 7/3, Kolbrún Franklín 5/2, Hafrún Kristjánsdóttir 3, Sigurlaug Rúnarsdóttir 3, Díana Guðjónsdóttir 2/1, Arna Grímsdóttir 1, Katrín Andrésdóttir 1, Árný Ísberg 1, Gerður Beta Jóhannsdóttir 1. Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 13/1.
Íþróttir Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn Rashford mættur til Barcelona Fótbolti „Heppinn að fá að lifa drauminn“ Golf Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Íslenski boltinn „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Rashford mættur til Barcelona Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Kassi í Mosfellsbæinn Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Dagskráin í dag: Snóker, píla og hafnabolti „Heppinn að fá að lifa drauminn“ West Ham sækir bakvörð frá föllnum Southampton-mönnum „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Vinna með lögreglunni eftir að Carter varð fyrir kynþáttaníð Búinn í læknisskoðun og ætti að ná Ameríkutúrnum Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Hera hafnaði í fimmta sæti á Evrópumótinu Scheffler tryggði sér sinn fjórða risatitil Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Messi nú með fleiri mörk en Ronaldo Gömul Boston Celtics stjarna semur við Los Angeles Lakers Stefán Ingi með þrennu í fyrri hálfleik Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Giftu sig en gáfu síðan allar brúðkaupsgjafirnar Ísak Snær opnaði markareikninginn hjá Lyngby Kærastinn kom henni í opna skjöldu í markinu eftir hundrað kílómetra hlaup Þjóðverjar sendu íslensku strákana niður í B-deildina Kolbeinn lagði upp sigurmarkið Frankfurt kann það betur en flest félög að græða pening á framherjum Sjá meira