Fjórtán látnir í umferðinni 22. júlí 2004 00:01
Þrír hafa látið lífið í umferðinni síðan 11. júlí. Fjórtán hafa alls látið lífið í umferðarslysum á árinu. Flest slysanna eiga sér stað nærri Reykjavík. Tveir hafa að meðaltali látið lífið í hverjum mánuði síðustu þrjátíu árin. Fjórtán hafa látist í umferðinni það sem af er árinu í tólf banaslysum. Þrjú slysanna áttu sér stað á rúmlega vikutímabili frá 11. til 20. júlí. Flest slysanna áttu sér stað nærri Reykjavík, á svæðinu frá Garði til Akraness. Þá létust tvær ungar stúlkur í banaslysi í Norðurárdal og tvö slys í nágrenni Blönduóss kostuðu tvo lífið. Einnig lét ung stúlka lífið í umferðarslysi á Vestfjörðum. "Það eru mjög miklar sveiflur í banaslysum," segir Sigurður Helgason, umferðaröryggissviði Umferðarstofu. "Á síðasta áratug höfum við bæði fengið mjög góð og mjög slæm ár." Nokkru færri slys höfðu átt sér stað á sama tíma á síðasta ári en þá höfðu tólf látist í tíu banaslysum við júlílok. Sigurður segir að um það bil 24 hafa að meðaltali látist á ári í umferðarslysum síðustu þrjátíu ár eða tveir á mánuði. "Nú í ár erum við í þessu óskemmtilega meðaltali," segir Sigurður. "Þrátt fyrir það liggur í augum uppi að hvert einasta slys er slysi of mikið." Sigurður segir ekkert mynstur að sjá í banaslysunum. "Alvarlegustu slysin verða þó alltaf úti á þjóðvegunum," segir Sigurður. "Þar er meiri hraði og því má ekkert út af bregða til að illa fari." Sigurður segir ökumenn helst þurfa að varast hraðakstur. "Ef fólki tekst að halda sig við löglegan hraða má strax stórauka líkur á að koma í veg fyrir slys," segir hann. "Einnig skiptir miklu máli að nota öryggisútbúnaðinn í bílnum og aka ekki undir áhrifum áfengis."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira