Innlent

Meint sniðganga kosningaloforðs

Stjórn Bandalags háskólamanna mótmælir harðlega að menntamálaráðherra hafi sniðgengið kosningaloforð um að endurskoða lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna, í samstarfi við hagsmunasamtök endurgreiðenda. Gísli Tryggvason, framkvæmdastjóri BHM, segir þetta vera augljósa sniðgöngu á bæði kosningaloforðum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og afleiðingin sé að erfitt verði að hafa samráð, eins og lofað var, við BHM og aðra endurgreiðendur. Gísli vonar að menntamálaráðherra sjái að sér en ef hún gerið það ekki verði leitað til forystumanna stjórnarflokkanna sem upplýsti hafi verið um gang mála.  Gísli segir markmiðið vera að lækka greiðslubyrðina eins og allir stjórnmálaflokkar hafi lofað BHM, SÍNE (Samband íslenskra námsmanna erlendis)og fjórtán öðrum hagsmunasamtökum. Leiðin að því marki sé samstarf við hagsmunasamtök endurgreiðenda.   Hægt er að hlusta á viðtal við Gísla Tryggvason með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×