Tímamótaskref tekið í dag 22. júlí 2004 00:01
Búist er við að tímamótaskref verði tekið á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í dag sem miðar að því að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Bandaríkjamenn styðja ásamt Íslendingum, Norðmönnum og Japönum tillögu um að endurskoðun á veiðistjórnunaráætlun verði lokið fyrir næsta ársfund ráðsins. Fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins lýkur í Sorrento á Ítalíu í dag en hann hefur staðið frá því á mánudag. Engin þáttaskil urðu á fundi ráðsins í gær. Tillögur um að heimila takmarkaðar veiðar í atvinnuskyni biðu þess enn í gærkvöldi að verða ræddar frekar en allt útlit þykir fyrir að Alþjóðahvalveiðiráðið sé reiðubúið til þess að binda enda á 18 ára bann í þeim efnum. Grænfriðungar og aðrir umhverfisverndarsinnar hafa gagnrýnt harkalega öll skref sem miða að því að leyfa veiðar í atvinnuskyni og túlka þau sem verulegt bakslag í baráttu sinni gegn hvalveiðum. Bandaríkjamenn styðja ásamt Íslendingum, Norðmönnum og Japönum tillögu um að endurskoðun á veiðistjórnunaráætlun ljúki fyrir næsta ársfund ráðsins, sem haldinn verður í Suður-Kóreu, en formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins hefur hvatt til þess að vinnu við áætlunina verði lokið svo hvalveiðarnar geti hafist. Hvalveiðiþjóðirnar benda á að sumir hvalastofnar hafi náð gríðarlegri stærð og eðlilegt sé að leyfa veiðar undir ströngu eftirliti. Breytingar í þá veru hafa reynst afar erfiðar hingað til þar sem krafa er gerð um að samþykki 75% aðildarríkjanna þurfi til þess að heimila breytingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira