Fjármálaráðherra greip inn í 17. júlí 2004 00:01
Fjármálaráðherra greip inn í deilu tollayfirvalda og akstursíþróttamanna um tryggingafé vegna heimsbikarsins í torfæru um helgina. Þar af leiðandi var hætt við að aflýsa keppninni. Landssamband íslenskra akstursfélaga segir málið engu að síður til skammar. Vegna heimsbikarsins í torfæru, sem var á dagskrá á Reykjanesi og Hellu um helgina, kröfðust tollayfirvöld 25 milljóna króna í tryggingafé vegna komu erlendra keppnisbifreiða til landsins. Akstursíþróttamenn gagnrýndu þessa háu upphæð, þar sem í raun væri um ferðamannabíla að ræða, og að ökuþórar hefðu hingað til eingöngu þurft að fylla út eyðublöð þegar keppnisbílarnar hefðu komið með Norrænu til landsins. Í gær hafði ekki tekist að leysa deiluna um tryggingarféð og var því hætt við að halda heimsbikarkeppnina. En hreyfing komst á málið að nýju með aðstoð Árna Sigfússonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, og samið var um 15 milljóna króna tryggingu. Árni segir að aksturíþróttamenn hafi þurft að klífa brattari brekkur en þetta en aðalatriðið sé að málið er leyst. Bæjarstjórinn talaði m.a. við fjármálaráðherra og segir hann hafa sýnt málinu mikinn skilning. Ólafur Guðmundsson, stjórnarmaður í Landsambandi íslenskra akstursfélaga, segist ánægður yfir að málið hafa endað farsællega en segist hins vegar vera óánægður með endurtekinn vandræðagang með að koma torfærubílum inn í landið. Að sögn Ólafs er þetta í fimmta skipti á síðustu 10-15 árum sem slíkt á sér stað og hann segir aldrei nein vandamál vera til staðar þegar farið er með bíla héðan til annarra landa. Þetta sé okkur því til skammar og hann hyggst ræða við fjármálaráðuneytið.
Fréttir Innlent Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Innlent „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Sjá meira
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent