Ætluðu að vera í mánuð við æfingar 14. október 2004 00:01
Rússnesku herskipin sem haldið hafa til hér við land síðustu daga eru hluti af skipum Norðurflotans sem héldu til æfinga undir stjórn Vladimírs Dobroskotsjenko, varaflotaforingja og aðstoðaraðmíráls í rússneska flotanum, að því er rússneska fréttastofan Itar-Tass greindi frá undir lok september. Skipin héldu upp frá flotastöðinni í Severomorsk, norðarlega á Kólaskaga. Æfingarnar voru sagðar tengjast sameiginlegum æfingum rússneska sjóhersins og þess bandaríska í Norðursjó. Varaflotaforinginn upplýsti fjölmiðla um það áður en skipin lögðu af stað að þau myndu verða við æfingar í norðausturhluta Atlantshafs í meira en mánuð. Fregnir herma að skipin sem hér hafa haldið sig fari ekki á brott fyrir en eftir nokkra daga. Skipin sem enn eru hér eru: Kuznetsov aðmíráll - Síðunúmer 063 Flugmóðurskip, stærð 58.000 tonn, lengd 304 metrar Skipinu, sem upphaflega var nefnt Tiblisi, var hleypt af stokkunum árið 1985 og er það eitt sinnar tegundar í Norðurflota Rússa. Öðru eins að nafni Varyag var hleypt af stokkunum þremur árum síðar en var aldrei fullbúið. Það skip var á endanum afhent Úkraínu, sem seldi það svo til Kína árið 1998. Flugmóðurskipið Kuznetsov hefur verið virkt í Norðurflota Rússa síðan í nóvember 1998. Þá höfðu staðið yfir viðgerðir og endurbætur á skipinu í tæp þrjú ár, en þær töfðust vegna skorts á fjárveitingum. Pyotr Velikiy (Pétur mikli) - Síðunúmer 099 Beitiskip, stærð 23.400 tonn, lengd 252 metrar Pétur mikli er kjarnorkuknúið beitiskip í flokki Kirov-árásarskipa sem eiga að geta tekist á við stór flugmóðurskip og varið flotann gegn árásum bæði flugvéla og kafbáta. Skipið er knúið áfram af blöndu kjarnorku- og gufuaflsvéla. Pétur er síðastur í sínum flokki skipa í notkun og eru uppi sögusagnir um að skipið verði tekið úr umferð á næstu árum. Smíði Péturs mikla hófst árið 1986 og var skipið það fjórða í flokki Kirov-skipa. Áður höfðu verið smíðuð skipin Ushakov aðmíráll (smíðað árið 1980), Lazarev aðmíráll (1984) og Nakhimov aðmíráll (tekið í notkun árið 1988). Ustinov marskálkur - Síðunúmer 055 Beitiskip, stærð 11.500 tonn, lengd 186 metrar Ustinov er beitiskip af "Slava"-flokki og var upphaflega tekið í notkun í Norðurflotanum árið 1986. Upphaflega bar skipið síðunúmerið "070", síðar "088" og nú "055". Skipið var í mikilli yfirhalningu í St. Pétursborg um miðjan tíunda áratuginn en sneri aftur til Norðurflotans árið 1998. Skipið var eitt sinn talið til flaggskipa Norðurflotans. "Slava"-skipin voru hugsuð sem minni og ekki eins framúrstefnuleg útgáfa af "Kirov"-skipunum, þar sem flesta möguleika stærri skipanna væri að finna, en umfangið minna. Besstrashny - Síðunúmer 434 Tundurspillir, stærð 7.900 tonn, lengd 156 metrar Skipið er af flokki "Sovremenny"-tundurspilla, en 18 slíkir hafa verið smíðaðir fyrir rússneska sjóherinn. Fimm skip eru enn í notkun, öll smíðuð í St. Pétursborg. Besstrashny var hleypt af stokkunum árið 1994. Tundurspillar af þessari tegund eru meðal annars sagðir bera þyrlu til kafbátavarna, 48 loftvarnaflaugar, 8 árásarskeyti, tundurskeyti, djúpsprengjur, fallbyssur og annan búnað. Skipið var yfirfarið og endurnýjað í fyrra. Sergey Osipov Birgðaskip, stærð 23.400 tonn, lengd 162 metrar Osipov er ekki að heimsækja landið í fyrsta sinn því í ágúst árið 2002 kom skipið í fylgd með öðru rússnesku herskipi í Reykjavíkurhöfn áður en þau héldu áfram til Bretlands þar sem þau tóku þátt í hátíðahöldum sjóhersins. SB-406 Dráttarbátur, stærð 3.000 tonn, lengd 69 metrar Bátar sem þessir eru notaðir í margvísleg verkefni. SB-406 er dráttarbáturinn sem var á leið með kjarnorkukafbátinn K-159 í togi í brotajárn 26. ágúst í fyrra þegar kafbáturinn sökk í Barentshaf. Af tíu manna áhöfn kafbátsins komst einn af. Altay Dráttarbátur, stærð 4.000 tonn, lengd 93 metrar Altay er dráttarbátur í flokki björgunarskipa Norðurflotans. Báturinn hefur meðal annars verið notaður í viðleitni til að bjarga kafbátnum K-159 af hafsbotni í Barentshafi.
Fréttir Innlent Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Fleiri fréttir Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Sjá meira