Innlent

Risastafur á Miklatúni

Settur verður upp 10 metra hár hvítur stafur á Miklatúni í Reykjavík í dag í tilefni af degi hvíta stafsins, alþjóðlegum baráttudegi blindra og sjónskertra, en hann er haldinn hátíðlegur 15. október ár hvert. Þreifistafurinn stóri á að standa í þrjár vikur til minningar um hvíta stafinn sem er helsta kennimerki blindra. Röraverksmiðja Reykjalundar hannaði og gaf blindrafélaginu stafinn stóra. Í tilefni dagsins verður einnig opið hús í Hamrahlíð 17 milli klukkan tvö og fjögur og gestum og gangandi boðið að kynna sér starfsemina sem þar fer fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×