Innlent

Sviðið seiðar

Börn fylltu Samkomuhúsið á Akureyri í gær þegar skráð var í áheyrnarprufur fyrir söngleikinn um Óliver Tvist sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir um jólin. Sjálfar prufurnar fara fram á laugardag. Leitað er að krökkum sem geta ýmist leikið, sungið eða dansað eða jafnvel allt í senn. Spenna ríkti meðal barnanna sem flest nutu aðstoðar mæðra sinna við skráninguna. Hafa þau haft rúman tíma til undirbúnings enda uppihald í náminu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×