Þakklát fyrir bróður minn 12. desember 2004 00:01 "
Jóhann Ingvarsson, vinnumaður á Geiteyjarströnd, segir að það hafi verið mikið sjokk þegar gólf hrundi þegar hann var að gefa 100 rollum á garðann. "Ég er ágætlega haldinn. Vatnið var hrikalega kalt og við, sem vorum að bjarga rollunum, brenndumst illa. Maður fór eiginlega verst út úr því þegar maður fékk á sig klakann og blóðgaðist. Ég er allur krambúleraður og löppin á mér er öll í skurðum. Ég fékk náttúrulega sýkingu í þetta og er á sýklalyfi," segir hann. Andlega er Jóhann ekki búinn að jafna sig. Hann segist sofa illa því að hann dreymi slysið. Hann og Lára systir hans, sem er húsfreyja á Geiteyjarströnd, hafa verið að sækja jeppa fyrir sunnan frá því fyrir helgi. Þau fara aftur norður í dag og taka strax aftur til starfa við búskapinn. "Það er engan bilbug á mér að finna. Þetta verður allt í lagi. Það er bara að vinna úr þessu," segir hann. Lára, sem er ein af þeim fyrstu sem komu að haughúsinu, segist vera ofboðslega þreytt, marin og blá eftir björgunarstörfin. "Það var ofsalegt áfall að horfa á eftir dýrunum sínum," segir hún. "Aðstæður voru hörmulegar. Ég fór inn og þá var gólfið komið niður. Maður sá yfir 100 rollur að reyna að bjarga lífi sínu og berjast við að komast einhvers staðar upp úr vatninu." Um 20 rollur drápust og 50 eru enn á penisilíni. "Ég missti allt tímaskyn, hugsaði bara um að bjarga dýrunum. Vatnið var ískalt og við brunnum fljótt en maður fann ekkert fyrir því. Ég datt nokkrum sinnum á bólakaf ofan í vatnið vegna þess að ég rakst í spýtnahrúgu og brenndist í andliti. Hjúkrunarkonan stoppaði okkur og sendi í bað. Það bjargaði okkur konunum, annars hefðum við farið verr," segir Lára. "Pollýanna sá alltaf björtu hliðarnar á öllu og það reynir maður að gera. Ég er þakklát fyrir að bróðir minn er á lífi í dag, það er mín Pollýanna. Hann hefði getað farið illa eða dáið."
Innlent Menning Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira