Innlent

Tvö innbrot í nótt

Brotist var inn í sendiferðabíl í vesturbæ Reykjavíkur í nótt og stolið úr honum tölvu og nokkrum tölvuskjám. Þá var tölvu og tölvuskjá einnig stolið úr báti í Reykjavíkurhöfn. Ekki er vitað hverjir voru að verki, né hvort um sama innbrotsþjóf hafi verið að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×