Mikið blóð bendir til átaka 12. júlí 2004 00:01
Mikið blóð var í íbúð mannsins, sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að eiga þátt í hvarfi fyrrum sambýliskonu sinnar og barnsmóður, sem ber merki þess að átök hafi átt sér stað. Konan er enn ófundin og ekkert hefur spurst til hennar síðan á sunnudagsmorguninn í síðustu viku. Lögregla bíður nú eftir niðurstöðum úr DNA rannsóknum frá Noregi sem meðal annars koma til með að segja til um hvort blóðið sem var í íbúð og jeppabifreið mannsins séu úr konunni. Maðurinn sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald á miðvikudaginn í síðustu viku heldur sig enn við fyrri framburð og segist ekkert hafa með hvarf barnsmóður sinnar að gera. Í gær var sendiferðabíll, í eigu mannsins, sem staðið hefur fyrir utan íbúð hans í Stórholti frá því rannsókn hófst, verið flutt á brott til rannsóknar. Þá hefur bíll konunnar sem staðið hefur fyrir utan íbúð mannsins frá því að hún hvarf einnig verið fluttur af vettvangi. Sendiferðabílinn hefur maðurinn, sem er múrari, notað sem vinnubíl og er geymslurými bílsins fullt af verkfærum. Vettvangsrannsókn lögreglu hefur hingað til einskorðast við íbúð mannsins og helsta nágrenni hennar auk tveggja bifreiða í hans eigu. Rannsókn málsins er umfangsmikil og hefur fjöldi lögreglumanna unnið að rannsókn þess. Ferðir mannsins frá því að síðast spurðist til konunnar og þar til hann var handtekinn á þriðjudaginn í síðustu viku hafa verið kannaðar. Þá hefur fjölda lífsýna verið safnað í vettvangsrannsókninni til greiningar. Enn hefur ekki verið lýst eftir konunni sem saknað hefur verið í rúma viku sem bendir til þess að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira