Innlent

Í gæsluvarðhaldi vegna innbrota

Tuttugu ára maður var úrskurðaður í gæsluvarðhald til fimmta júlí að kröfu lögreglunnar á Selfossi vegna fjölda innbrota á Suðurlandi. Rannsókn hefur staðið yfir að undanförnu og er maðurinn einnig grunaður um nokkur innbrot í Reykjavík. Hann hefur játað sjö innbrot en fleiri eru til rannsóknar. Vegna rannsóknarinnar sem er umfangsmikil hafa fimm ungir menn verið handteknir og yfirheyrðir. Verðmæti þýfis úr innbrotunum er talið skipta milljónum, þá er ótalið tjón vegna skemmda og tap eigenda á upplýsingum. Þýfið er að mestum hluta tölvur, tölvubúnaður, skjávarpar og önnur verðmæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×