Innlent

Tryggingasvik

Kona sem keypti sjúkdómatryggingu fær ekki bætur þar sem hún veitti ekki fullnægjandi upplýsingar á umsóknareyðublaði. Hæstiréttur Íslands dæmdi tryggingafélagi konunnar í vil og sagði ljóst að tryggingafélagið hefði ekki tekið að sér að veita konunni tryggingu gegn þeirri áhættu sem um var að ræða. Konan er með ósæðalokuleka og er í árlegu eftirliti ásamt því að þurfa lyf við tilteknar aðstæður. Konan greiðir 200 þúsund krónur í málskostnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×