Innlent

18 þúsund konur í Kvennahlaupinu

Um átján þúsund konur á öllum aldri tóku þátt í afmælishlaupi Kvennahlaupsins í dag á 90 stöðum hérlendis og 15 stöðum erlendis. Samkvæmt fréttatilkynningu er þetta um 12,5% íslenskra kvenna. Elsti þátttakandinn, Guðrún Stefánsdóttir, átti 89 ára afmæli í dag. Kvennahlaupið er 15 ára og segir ÍSÍ að framkvæmdin hafi tekist vel.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×