Bótakrafa Litháa á hendur ríkinu 19. júní 2004 00:01
Litháinn, sem Hæstiréttur dæmdi í gær að hefði verið ranglega vísað úr landi, hefur í raun verið í nokkurs konar átthagafjötrum síðan. Ekki er ósennilegt að hann eigi bótakröfurétt á hendur íslenska ríkinu. Maðurinn kom hingað til lands síðla árs 1999 og fékk dvalarleyfi fram í febrúar 2001. Í ljós kom að hann hafði árið 1995 nauðgað og myrt unga konu. Maðurinn reyndist geðklofi og var vistaður á sjúkrahúsi, en sleppt árið 1999 og kom til Íslands í kjölfarið. Hann sagðist við yfirheyrslur geta lifað eðlilegu lífi með aðstoð lyfja. Útlendingaeftirlitið úrskurðaði að manninum skyldi vísað úr landi og staðfesti dómsmálaráðuneytið þann úrskurð, sem byggðist á ályktunum sem dregnar voru af læknisfræðilegum gögnum frá árinu 1995, án þess að taka það með í reikninginn að manninum hafði verið sleppt af sjúkrahúsi í heimalandi sínu. Hæstiréttur taldi að slíkir annmarkar hefðu verið á meðferð málsins að ógilda skyldi brottvísunina. Þegar honum var vísað úr landi gilti sú ákvörðun á Norðurlöndum og þýddi ævilangt endurkomubann til Íslands, auk þess sem maðurinn var skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þrjú ár. Hann fór héðan til Litháen og hefur eðli málsins samkvæmt verið óheimilt að ferðast um Schengen svæðið, sem er megnið af Evrópu, og því má segja að hann hafi verið í nokkurs konar átthagafjötrum. Ekki er talið ósennilegt að hann eigi bótakröfu á íslenska ríkið vegna hinnar ólögmætu brottvísunar.
Fréttir Innlent Mest lesið Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira