Innlent

Grípa verður í taumana sem fyrst

"Þetta staðfestir það sem vitað hefur verið lengi og margar aðrar kannanir hafa sýnt svipaða niðurstöðu," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, vegna nýrrar skýrslu Efnahags- og viðskiptastofnunar Evrópu, OECD, sem sýnir að kostnaður fjögurra manna íslenskrar fjölskyldu vegna matvælaverðs sem og styrkja til landbúnaðar nemur 210 þúsund krónum. "Við styðjum landbúnað manna mest á sama tíma og við greiðum manna mest fyrir matvæli. Það er afar hætt við að skellur íslenskra bænda verði mun meiri en ella þegar samningar nást um frjáls viðskipti innan Alþjóðaviðskiptamálastofnunarinnar. Það er augljóst að kröfur þróunarlandanna eiga meiri hljómgrunn meðal Vesturlanda en verið hefur og það kemur að því að öll höft verða felld niður. Þá óttast ég að ef ekki er gripið í taumana sem fyrst þá verði áfallið mikið fyrir marga sem landbúnað stunda hér á landi." Jóhannes telur ljóst að áfram verði landbúnaður stundaður í sveitum Íslands en með öðru sniði en verið hefur. "Það verður aldrei um það að ræða að flutt verði hér inn nýmjólk og slíkar vörur en ef íslenskt oststykki þarf að kosta þrefalt meira hér á landi en erlendis er löngu orðið tímabært að huga að endurskipulagningu innan landbúnaðarins."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×