Innlent

Hvalur verkaður í Sandgerði

Sjö metra langur hvalur veiddist í gær 10 sjómílur undan Stafnesi og var hann í kjölfarið verkaður af starfsmönnum Hafrannsóknarstofnunarinnar á gólfi fiskvinnsluhúss í Sandgerði. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Hvalurinn, sem er karlkyns hrefna, var hlutaður niður og ísaður í kör eftir að fjölmörg sýni höfðu verið tekin úr skepnunni. Málbandi var óspart beitt og allar tölur skráðar niður og, að því er fram kemur á vefnum, var karlmennska dýrsins jafnvel mæld og var hún ekkert til að skammast sín fyrir. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×