Innlent

Lögreglumál í nótt

Slökkvilið og lögreglu voru kölluð að gamla pósthúsinu við Digranesveg í Kópavogi á öðrum tímanum í nótt en tilkynnt hafði verið um að þar væri mikill eldur. Þegar að var komið kom í ljós að skipaflugeldi hafði verið skotið undir þakskegg þar sem hann sat fastur og rauk mikið úr. Slökkt var í honum og voru skemmdir minniháttar. Þá var Kópavogslögreglunni tilkynnt um bílveltu á Nýbýlavegi um klukkan þrjú í nótt og þegar lögregla og sjúkralið voru á leið á staðinn barst tilkynning um að ekið hefði verið á ljósastaur. Ölvaður ökumaður hafði misst stjórn á bíl sínum og ekið yfir umferðareyju og út af. Hann slasaðist ekki en skemmdir urðu á umferðarmannvirkjum. Karlmaður gistir nú fangageymslur lögreglunnar á Ísafirði, grunaður um líkamsárás. Hann er grunaður um að hafa ráðist að ókunnugum manni á götu á Ísafirði í nótt en sá hlaut ekki alvarlega áverka. Meintur gerandi bíður yfirheyrslu. Engin stórvægileg mál komu til kasta lögreglu víða um landið í nótt en nokkuð var um að ökumenn væru teknir fyrir að aka undir áhrifum. Þá þurfti lögreglan á Akureyri að fara nokkrum sinnum á tjaldstæði bæjarins þar sem var líf og fjör, eins og lögreglumaður orðaði það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×