Gæsluvarðhaldsúrskurður kærður 18. júní 2004 00:01
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þremur útlendingum, sem vísa á úr landi, var kærður til Hæstaréttar í dag. Fyrrverandi lögmaður eins þeirra segir yfirvöld með leikaraskap í málinu og standi að sínu mati ólöglega að meðferð þess. Mennirnir, sem segjast vera Palestínumenn, komu til landsins með Norrænu í byrjun maí. Þeir framvísuðu fölsuðum eða stolnum skilríkjum og þegar þeir voru handteknir óskuðu þeir eftir hæli hér á landi. Grunur lék á að þeir tengdust alþjóðlegri glæpastarfsemi og voru þeir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Það rann út í fyrradag og þeim sleppt en samstundis úrskurðaðir í gæsluvarðhald að nýju og nú á grundvelli brota á útlendingalögum. Þess má geta að fyrir rúmri viku úrskurðaði Útlendingastofnun að mennirnir skyldu sendir til Noregs, þaðan sem þeir komu. Þar sem um nýtt mál var að ræða, að mati embættis Ríkislögreglustjórans, var mönnunum útvegaður nýr lögmaður í stað þeirra þriggja sem annað höfðu þá fram að þessu. Einn lögmannanna, Jón Einar Jakobsson, segir að sinn skjólstæðingur hafi ekki viljað skipta um lögmann, en líklega hafi dómtúlkur túlkað rangt fyrir hann. Jón Einar gefur ekki mikið fyrir þau rök að nú sé komið upp nýtt mál. Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurðirnir hafi meðal annars verið byggðir á því að um brot á útlendingalöggjöf væri að ræða, og ekkert brot hafi verið framið síðan, og þetta sé því leikaraskapur í sínum augum. Lögmennirnir þrír höfðu engar upplýsingar fengið um að ekki stæði til að ákæra þremenningana fyrir fyrri ætluð brot, heldur væri nýtt málið komið upp, og segir Jón Einar það vera óeðlileg og ólögleg vinnubrögð. Hann segir jafnframt að skjólstæðingur sinn hafi ekki orðið var við að hann hafi verið látinn laus og svo handtekinn aftur. Norðmenn hafa samþykkt að taka við þremenningunum en þar eiga þeir beiðni um hæli. Núverandi lögmaður þeirra kærði í dag gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar á þeim grundvelli að beita megi vægari úrræðum, fyrst ákveðið hafi verið að vísa mönnunum úr landi. Sá úrskurður hefur reyndar verið kærður til dómsmálaráðuneytisins.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira