Mæla með skerðingu heildarafla 18. júní 2004 00:01
Nefnd um langtímanýtingu fiskistofna telur að skerða verði heildarafla um þrjú prósent í aflareglum og koma í veg fyrir að raunafli fari framúr leyfðum heildarafla. Tillögurnar hafa þegar verið teknar í framkvæmd að hluta til. Ofmat á þorskstofninum við Ísland og umframafli miðað við leyfðan heildarafla hefur gert að verkum að raunafli er um 20 prósent meiri en aflareglur frá árinu 1996 gera ráð fyrir. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar um langtímanýtingu fiskistofna. Friðrik Már Baldursson, formaður nefndarinnar, segir að síðastliðna tvo áratugi hafi gætt tilhneigingar til ofmats upp á tíu prósent að jafnaði, við mat á stærð þorskstofnins. Heildarafli af veiðistofni sé því ekki 25 prósent eins og gert var ráð fyrir heldur 27,5 prósent. Þegar við bætist umframafli miðað við leyfðan heildarafla hafi raunafli verið tæplega þrjátíu prósent. Í niðurstöðum nefndarinnar kemur fram að brýnt sé að leiðrétta þessar skekkjur þannig að raunverulegur afli verði í samræmi við nýtingarstefnu. Telur nefndin að regla sem miðar við 22 prósent heildarafla af veiðistofni, eins og tillögur um aflareglur frá 1994 gerðu ráð fyrir, sé fýsileg hvað varðar afkomu, stöðugleika og vöxt þorskstofnins. Ef sjávarútvegsráðherra myndi taka þessa reglu óbreytta upp myndi það hafa talsverða skerðingu í för með sér, eða allt að því tíu prósent niðurskurð á heildarafla þorsks. Nefndin telur þó hugsanlegt að bíða með að koma 22 prósent reglunni í framkvæmd þar til ekki þurfi að draga úr veiðum, þó henni sé komið á Þá þarf fyrst og fremst að taka á ofmati þorskstofnsins og draga úr framúrkeyrslu. Friðrik Már telur að það þurfi ekki endilega að bíða lengi eftir að svo yrði. "Ef ofmatið er lagfært og þorskstofninn myndi mælast tíu prósent meiri á næsta ári miðað við árið áður, væri hægt að innleiða 22 prósent regluna án þess að draga úr veiðum." Sóknardagakerfinu er að mestu kennt um umframafla miðað við leyfileg mörk og bæði Friðrik og Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, telja að með afnámi sóknardagakerfisins sé búið að stuðla að því að raunafli og nytjastefna fari saman. Það sé því þegar búið að innleiða tillögur nefndarinnar að hluta til. Árni hefur ekki tekið afstöðu til álits nefndarinnar að öðru leyti enn sem komið er.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira