Spuni á fimmtudagskvöldum á REX 22. desember 2004 00:01
Gítarleikarinn Börkur Birgisson úr Jagúar og plötuspilarinn Margeir spinna saman sjóðheitt sett fyrir gesti Rex annað kvöld, þorláksmessukvöld. DJ Margeir er í forsvari spunakvöldanna, sem felast í spilamennsku hans og annarra fyrsta flokks plötusnúða í takt við lifandi tóna framúrskarandi hljóðfæraleikara sem spinna með þeim af lífi og sál. Þessir tónlistarmenn eru til að mynda hammond leikarinn Sigurður Guðmundsson úr Reggae hljómsveitinni Hjálmum, Árni Heiðar Karlsson og Davíð Þór Jónsson píanósnillingar, básúnublístrarinn og söngfuglinn Samúel J. Samúelsson úr Jagúar og Jóel Pálsson og Óskar Guðjónsson saxafónséní. Þetta er þó bara brot af þeim listamönnum sem munu spila á Spuna og því má segja að ekkert kvöldanna verði eins. Einnig verða ungir og upprennandi tónlistarmenn velkomnir í Spunahópinn og mega þeir endilega láta heyra í sér! Það sem gerir þessi Spunakvöld spennandi er samspil plötusnúðarins og hljóðfæraleikarans sem er algjörlega óæft og ræður tilfinningin ein ríkjum hverju sinni. Í sumum tilfellum munu þeir ekki einu sinni hafa hist áður og kynnast því einungis í gegnum lögin, sem gerir þetta að spennandi spuna einstaklinga með ólíkan tónlistarbakgrunn en sameinast í tónlistinni. Því er hér ekki um æft tónleikaprógram að ræða, heldur óvenjulega tónlistarviðburði með óvæntum uppákomum sem enginn má missa af. Kvöld þessi eru í ætt við hin vel sóttu og vinsælu "Groove Improve" kvöld sem haldin voru öll fimmtudagskvöld, á sama stað, á tæplega tveggja ára tímabili fyrir nokkrum árum. Þau ólu af sér tvo geisladiska sem lifa enn góðu lífi. Var tími til kominn að endurvekja þessa frábæru stemningu en fyrsta Spunakvöldið var haldið fimmtudagskvöldið 25. nóvember síðastliðinn þegar Margeir og Jóel Pálsson saxafónleikari með meiru riðu á vaðið og spunnu saman töfrandi tóna við mikla hrifningu viðstaddra. Það má því búast við sjóðandi heitri og spennandi stemningu á Spunakvöldunum á öllum fimmtudögum í vetur á glæsistaðnum Rex við Austurstræti. Herlegheitin hefjast upp úr klukkan 22 og er aðgangur ókeypis.
Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira