Rauður úrgangur í Elliðaá 6. júlí 2004 00:01
Elliðaárnar við Geirsnef urðu heldur óhugnanlegar á að líta í dag. Bilun í setþróm steypustöðvarinnar BM-Vallár olli því að torkennilegur rauður vökvi barst í árnar. Efnið reyndist skaðlaust en ýmsum brá við þessa sjón. Efnið sem barst í Elliðaárnar er svokallað járnoxíð, en það er rautt efni sem steypustöðin BM-Vallá notar í steypu við framleiðslu á hellum. Að sögn Lúðvíks Gústafssonar, hjá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík, fór eitthvað úrskeiðis í setþróm steypustöðvarinnar og af þeim sökum barst efnið í árnar. Þær voru heldur ógeðslegar á að líta á þeim stað sem óhappið var, en járnoxíð er þó skaðlaust og skolast burt af sjálfu sér. Nokkur sjónmegnun hlaust af þessu og brá ýmsum, sem staddir voru á svæðinu í göngutúr. Fulltrúi heilbrigðiseftirlitsins fór á staðinn til að kanna málið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem óhapp af þessu tagi verður, en steypustöðin vinnur að því að koma sér upp búnaði til að koma í veg fyrir slíkt. Fyrirhugað er að koma upp sérstakri settjörn, sem agnir eiga að setjast í, og úr henni á að fara hreint vatn. Samráðshópur um Elliðaárnar hefur vakið athygli á þessum vanda og þrýst á að tekið verði á honum, og hefur heilbrigðiseftirlitið veitt BM-Vallá, ásamt örðum fyrirtækjum á svæðinu, frest fram á sumar til að koma sér upp búnaði.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira