Innlent

Slæm tíðindi fyrir tölvuþjófa

Fartölvuþjófar munu ekki eiga sjö dagana sæla í framtíðinni. Tölvufyrirtækið Skýrr bíður nú fartölvueigindum upp á þjónustu sem staðsetur tölvur hvar sem er í heiminum. Ef einhver verður fyrir því að tölvunni hans er stolið getur sá hinn sami tilkynnt þjófnaðinn til lögreglu. Hægt er að gefa lögreglunni nákvæma staðsetningu á vélinni þannig að hún getur farið og sótt vélina að undangenginni heimild frá dómara. Skýrr bíður einnig fyrir tækum upp á að fylgjast með tölvum í þeirra eigu, það er hvar þær eru, hvaða hugbúnaðarleyfi eru á hverri tölvu og álag örgjörva.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×