Innlent

Sýslumannsembættið í þrot

Sýslumannsembættið á Sauðárkróki stefnir í fjárhagslegt þrot, ef mótshaldarar Landsmóts ungmennafélaganna vilja ekki greiða löggæslukostnað við mótið, eins og þeir hafa hótað. Framkvæmdastjóri mótsins hefur látið hafa það eftir sér á opinberum vettvangi að fyrr muni hann sitja sekt af sér í fangelsi, en að greiða löggæslukostnað. Að mati Ríkharðs Mássonar sýslumanns, er áætlað að hann nemi tveimur og hálfri milljón vegna mótsins núna og unglingamótsins um verslunarmannahelgina. Hann segir að búist sé við 15-20 þúsund manns á svæðið og lögreglan beri ábyrgð á fólkinu. Hann ætli að halda sig við heimamenn og því verði stífar vaktir á þeim lögreglumönnum sem starfa á meðan á mótinu stendur. Ríkharður efast um að hann muni reyna að innheimta löggæslukostnaðinn af hörku ef mótshaldarar neita að borga. Það sé þó augljóst að Sýslumannsembættið muni fara fram úr þeim fjárlagaheimildum sem þeim er ætlað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×