Stúlkur skara fram úr 6. desember 2004 00:01
Ísland er talsvert fyrir ofan meðaltal í könnun OECD á stærðfræðikunnáttu, eða í 10.-14. sæti, við meðaltal í lestrarkunnáttu og rétt fyrir neðan meðaltal í kunnáttu í náttúruvísindum. Langmest áhersla var á að kanna stærðfræðikunnáttu að þessu sinni í PISA-rannsókninni 2003 sem náði til OECD-landanna og annarra ríkja. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir ánægjulegast að íslenskir nemendur standi sig betur í stærðfræði en áður hafi sést í svo stórri rannsókn. "Það hafa orðið miklar framfarir frá því í síðustu könnun." Júlíus K. Björnsson, einn stjórnenda verkefnsins á Íslandi, sagði á blaðamannafundi í gær að athygli vekti hve miklu betur 15 ára stúlkum gengi hér á landi í stærðfræði en drengjum. Stúlkurnar eru í 8. sæti af öllum stúlkum sem könnunin tók til en strákarnir í 20. sæti. Munurinn er að vísu miklu minni á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. "Í allflestum löndum í könnuninni voru strákarnir betri. Mynstrið er allt öðru vísi hér. Við þurfum bersýnilega að sparka strákunum kirfilega upp á við til að bæta okkur enn meira." Þorgerður Katrín segir að þessar niðurstöður hafi vakið athygli innan OECD en þýði hugsanlega að ný verkefni blasi við í jafnréttisumræðunni. Í skýrslu OECD segir að Ísland sé eitt þeirra landa þar sem lestrarkunnáttan hafi versnað að meðaltali og einnig meðal hinna lökustu. Þorgerður Katrín túlkar niðustöðuna í náttúrufræði og lestri þannig að við höfum hvorki versnað né bætt okkur. Menntamálaráðherra bendir líka á sem jákvætt atriði að hvergi hafi greinst minni munur á niðurstöðum milli einstakra skóla en á Íslandi. Júlíus K. Björnsson segir að þetta bendi til að óvíða sé jafnrétti til náms jafnmikið og hér á landi.
Innlent Menning Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Fleiri fréttir Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Sjá meira